Verum vel undirbúin
Við búum á landi þar sem óveður gengur reglulega yfir og því mikilvægt að vera við öllu búin og huga vel að öryggi okkar og eignum. Algengustu tjónin í óveðri eru foktjón, þar sem lausamunir takast á loft og skemma t.d. ökutæki og mannvirki. Því skiptir miklu máli að ganga tryggilega frá öllum lausamunum þegar óveðri hefur verið spáð. Í mjög slæmu veðri geta ýmsir hlutir farið af stað eins og t.d. tré og þakplötur sem erfiðara er að fyrirbyggja. Fyrir vikið er alltaf mikilvægt að vera með rétta tryggingarvernd. Hér fyrir neðan er farið yfir hvaða tryggingar taka á foktjóni og hvað við getum gert til að fyrirbyggja að þau verði.