Greiðsluleiðir í boði
Frá og með 1. janúar 2020 verður ekki hægt að greiða iðgjöld með peningum í útibúum okkar.
Hægt er að skipta greiðslum í 3, 6, 9 eða 12 mánuði. Einnig er hægt að vera með eingreiðslu í öllum neðangreindum greiðsluleiðum:
Greiðsluleiðir | Lýsing |
---|---|
Boðgreiðsla | Skuldfærsla mánaðarlega af kreditkorti/debetkorti. Hafðu samband og við skráum inn kortanúmerið. |
Beingreiðsla |
Skuldfærsla mánaðarlega af bankareikningi samkvæmt samningi. |
Fyrirtækjadreifing | Mánaðarlegur greiðsluseðill sendur. Gjalddagi er 1. hvers mánaðar og eindagi 15. hvers mánaðar |
Staðgreiðsla |
Rafræn krafa stofnast í netbanka fyrir hvert iðgjald. |
Óskir þú eftir frekari upplýsingum eða breytingu á núverandi greiðsluformi vinsamlegast sendu þá póst á sjova@sjova.is, og við munum hafa samband við þig við fyrsta tækifæri og ganga frá málinu.
Einnig getur þú hringt í þjónustusíma 440 2000, spjallað við okkur á netspjallinu eða komið við hjá okkur í næsta útibúi.