Hvernig setur maður upp nágrannavörslu?
Það er ýmislegt hægt að gera til að minnka líkur á innbrotum og hefur nágrannavarsla sýnt sig sem góð forvörn í þeim efnum. Í henni felst að íbúar og nágrannar taka sig saman til þess að sporna við innbrotum og eignatjóni í sinni götu eða fjölbýli. Mörg sveitarfélög vinna markvisst að því að setja upp nágrannavörslu með aðstoð íbúa enda hefur reynslan verið góð og nágrannavarsla skilað árangri. Einnig er hægt að leita til okkar varðandi ráðgjöf ef setja á slíka vörslu upp.
Þegar áhugi kviknar um upptöku nágrannavörslu þá þarf að huga að ýmsu. Til einföldunar þá höfum við sett ferlið upp í sex skrefum:
- Gott er að byrja á því að skoða handbókina okkar um nágrannavörslu, þar koma fram allar helstu upplýsingar.
- Kannaðu áhuga meðal nágranna.
- Athugaðu hvort það gildi einhverjar reglur um nágrannavörslu í sveitarfélaginu.
- Halda kynningarfund um nágrannavörslu fyrir fólkið í hverfinu.
- Í handbókinni er að finna ýmsa gátlista sem gott er að fara yfir til að gera heimilið sem öruggast og varna innbrotum.
- Pantaðu nágrannavörsluskilti og límmiða og settu upp í götunni þinni. Kanna þarf hvort að sveitarfélagið útvegar skilti annars er hægt að nálgast þau hjá okkur.
Í handbók Sjóvá um nágrannavörslu má finna allar upplýsingar um hvernig á að setja upp nágrannavörslu skref fyrir skref. Þar er einnig að finna gátlista sem hjálpa þér að gera heimilið þitt öruggara ásamt ítarefni um hvernig best er að sporna gegn innbrotum. Við hvetjum fólk eindregið til að kynna sér handbókina vel og fara yfir gátlistana.