Þetta á við um bæði lögboðnar ökutækjatryggingar og kaskó. Frá 1. maí geturðu séð hvað þetta þýðir nákvæmlega fyrir þig á Mínum síðum
Við vildum því bregðast við þessum tímabundnu aðstæðum þannig að einstaklingar greiði ekki fyrir tryggingar einkabíla sinna hjá okkur í maí, þótt þær séu auðvitað í fullu gildi. Þetta á við um alla einstaklinga sem eru með bifreiðatryggingar fyrir ökutæki í almennri notkun í gildi hjá okkur þann 1. maí og út maímánuð.
Allir einstaklingar sem eru skráðir vátryggingatakar á bifreiðatryggingu fyrir ökutæki í almennri notkun sem er í gildi 1. maí og út þann mánuð fá maí-hluta ársiðgjaldsins felldan niður. Þetta á bæði við um lögboðnar ökutækjatryggingar og kaskó. Þetta eru samtals um 43 þúsund viðskiptavinir sem eru með eitt eða fleiri ökutæki tryggt hjá okkur.
Nei þú þarft ekki að gera neitt.
Allir einstaklingar sem eru með tryggingar í gildi fyrir bílinn sinn þann 1. maí og út þann mánuð fá lækkun sem nemur einni mánaðargreiðslu af þeim, í formi niðurfellingar, lækkunar eða endurgreiðslu, eftir því sem við á. Upphæð og útfærsla lækkunarinnar er aðgengileg hverjum og einum inni á Mínum síðum frá 1. maí.
Upphæðin niðurfellingarinnar fyrir hvern og einn verður aðgengileg á Mínum síðum frá og með 1. maí. Á forsíðu birtist heildarupphæðin en hægt er að skoða hversu há niðurfellingin er eftir skírteinum á hreyfingayfirliti á Mínum síðum (undir Aðgerðir - Fjármál).
Athugið að upphæðin á Mínum síðum birtist með fyrirvara um að ekki hafi verið gerðar breytingar á tryggingaverndinni frá 29. apríl en til að eiga rétt á lækkuninni þurfa umræddar tryggingar að vera í gildi þann 1. maí og út maímánuð.
Aðgerðin nær til bifreiðatrygginga fyrir ökutæki í almennri notkun sem eru í gildi 1. maí, bæði lögboðnar ökutækjatryggingar þessara ökutækja og kaskó. Hún nær ekki til annarra ökutækja en einkabíla, s.s. vélsleða, mótorhjóla, fornbíla og dráttarvéla en þessi ökutæki eru oftast í árstíðabundinni notkun og hafa því ekki orðið sambærilegar breytingar á forsendum útreikninga þeirra, þ.e. fækkun tjóna.
Þessi aðgerð nær ekki til fyrirtækja og lögaðila. Við erum í góðu sambandi við þau fyrirtæki sem eru í viðskiptum hjá okkur og förum reglulega yfir stöðuna með þeim. Við ráðleggjum þeim sem standa frammi fyrir breyttu rekstrarumhverfi eða umsvifum að hafa samband við okkur í síma 440 2000 til að fara yfir tryggingaverndina, eða senda tölvupóst á fyrirtaeki@sjova.is. Við bendum fyrirtækjum einnig á að kynna sér vel þau úrræði sem ríkisstjórnin hefur sett fram þeim til handa.
Já, það eru engin takmörk á því. Við erum einfaldlega að fella niður maí iðgjöld allra bifreiðatrygginga einstaklinga hjá okkur, þ.e. ábyrgðartrygginga og kaskó fyrir ökutæki í almennri notkun, sama hversu marga slíka bíla hver viðskiptavinur er með tryggða.
Eftir að samkomubannið tók gildi hefur tilkynntum ökutækjatjónum til okkar fækkað töluvert og því erum við að bregðast við. Við höfum hins vegar ekki séð breytingar á tjónatíðni í öðrum tryggingaflokkum á þessum tíma (s.s. eigna- og fjölskyldutryggingum). Verðlagning þeirra er þó í stöðugri skoðun hjá okkur, líkt og er með allar tryggingar.
Ástæðan fyrir því að þessi aðgerð nær aðeins til einkabíla er sú að önnur ökutæki, eins og mótorhjól, dráttarvélar og vélsleðar, eru í árstíðabundinni notkun og því hafa ekki orðið sambærilegar breytingar á forsendum útreikninga þeirra.
Eins og staðan er núna er erfitt að segja til um hvernig umferð og tjónatíðni eiga eftir að þróast á næstum mánuðum. Við fellum því niður iðgjöld af bifreiðatryggingum einstaklinga í maí út frá þeim forsendum sem við getum gefið okkur á þessu stigi en getum ekki tekið ákvarðanir lengra fram í tímann. Við höldum hins vegar áfram að fylgjast vel með þróuninni og bregðast við þeim aðstæðum sem koma upp.
Ástandið sem nú ríkir er tímabundið og við vitum ekki hvað það á eftir að vara lengi og hver áhrifin verða. Við völdum því að fara þessa leið, að fella niður iðgjöld bifreiðatrygginga í maí, til að geta brugðist við þessum óvenjulegu aðstæðum strax. Við teljum að með því að fá alla lækkunina strax geti þetta nýst viðskiptavinum okkar betur en ef lækkuninni hefði verið dreift á komandi mánuði. Iðgjöldin eru síðan alltaf í stöðugri skoðun hjá okkur, m.a. í samræmi við þróun á tjónatíðni.