Við ættum öll að vera vel tryggð fyrir alvarlegum veikindum
Hvernig stendur þú fjárhagslega ef slys eða alvarleg veikindi valda því að þú verður óvinnufær til lengri eða skemmri tíma? Veistu hvort þú eigir rétt til bóta og frá hverjum? Að vera frá vinnu til lengri eða skemmri tíma getur haft áhrif á fjárhagslegt öryggi þitt. Laun geta lækkað á meðan reglubundin útgjöld heimilisins standa í stað.
Ef þú ert launþegi átt þú tímabundinn rétt á launum frá vinnuveitenda ef þú verður óvinnufær af völdum veikinda eða slysa. Þegar sá réttur er fullnýttur taka við dagpeningar úr sjúkrasjóði sem eru almennt 80% af launum. Það er mismunandi eftir stéttarfélögum hve lengi dagpeningar eru greiddir, algengur tími er 3 mánuðir en hann getur verið lengri. Hafir þú greitt í lífeyrissjóð í þrjú ár eða lengur átt þú rétt á fullum örorkulífeyri frá sjóðnum ef þú hefur verið óvinnufær samfellt í sex mánuði. Algengt er að sá lífeyrir sé 50-60% af launum. Þessi réttindi ná því ekki að bæta tekjutap þitt að fullu. Þess vegna er nauðsynlegt að huga að sjúkdóma- og sjúkraörorkutryggingum til að tryggja áframhaldandi fjárhagslegt öryggi.