Þeir sem flytja til Íslands þurfa að hafa lögheimili hér í sex mánuði áður en þeir falla undir almannatryggingar. Sjúkrakostnaðartrygging getur létt stórum hluta af þeim kostnaði af fólki þar til það öðlast réttindi samkvæmt almannatryggingalögum.
Þeir sem flytja til Íslands þurfa að hafa lögheimili hér í sex mánuði áður en þeir falla undir almannatryggingar. Þetta á bæði við um útlendinga sem koma hingað til lengri eða skemmri dvalar og Íslendinga sem hafa flutt lögheimili sitt til annars lands og eru að snúa aftur.
Við bjóðum þessum einstaklingum sjúkrakostnaðartryggingu sem auðveldar þeim að brúa bilið. Sjúkrakostnaðartrygging gildir í sex mánuði og veitir sambærilegar vernd og sjúkratryggingar samkvæmt lögum um almannatryggingar. Þannig greiðir hún þann hlut sem almannatryggingar greiða alla jafna í læknis- og lyfjakostnaði, þegar eigin áhættu er náð.
Það er einfalt að kaupa Sjúkrakostnaðartryggingu fyrir þig eða fyrir aðra. Þú smellir á hnappinn hér fyrir neðan og ferlið hefst. Ef þú ert með rafræn skilríki eða aðgang að íslenskum netbanka getur þú sótt um fyrir einstaklinga sem hafa ekki íslenska kennitölu, einn eða fleiri í einu. Mundu bara að ef sá sem sótt er um fyrir er ekki með íslenska kennitölu, þá þarf skannað afrit af vegabréfi viðkomandi að fylgja með umsókninni. Forráðamenn barna yngri en 18 ára geta einnig sótt um fyrir þeirra hönd.
Kaupa trygginguHér getur þú keypt Sjúkrakostnaðartryggingu fyrir þig eða barnið þitt. Þetta kaupferli er hugsað fyrir þá sem eru ekki með íslensk rafræn skilríki eða aðgang að íslenskum netbanka. Athugið að hér er aðeins hægt að kaupa fyrir einn einstakling í einu. Skannað afrit af vegabréfi þess sem sótt er um fyrir þarf að fylgja með umsókninni.
Kaupa tryggingu
ATH. Tímabundið er ekki hægt að sækja um hærri vátryggingarfjárhæð í Sjúkrakostnaðartryggingu innanlands en kr. 2.000.000. Þá þurfa umsækjendur 60 ára og eldri að sækja skriflega um trygginguna. Umsóknareyðublað getur þú sótt hér.
Rétt er að benda á að þeir sem hafa átt lögheimili í EES-landi, Sviss, Færeyjum eða Grænlandi og fallið undir almannatryggingar í þeim löndum geta flutt þau réttindi með sér til Íslands. Sjá nánar á vef Sjúkratrygginga Íslands, sjukra.is.