Lögboðin ökutækjatrygging innifelur annars vegar ábyrgðartryggingu og hins vegar slysatryggingu ökumanns og eiganda.
Ábyrgðartrygging ökutækis tryggir þig fyrir því tjóni sem þú veldur öðrum með notkun ökutækisins. Það á bæði við um tjón á mönnum og munum.
"Ég er hæstánægður með hversu hratt og vel brugðist var við þegar ekið var á bílinn minn.
Tjónið var bætt án tafar og ekkert sem á stóð hjá Sjóvá.
VEL GERT"
Slysatrygging ökumanns og eiganda bætir tjón vegna slyss ökumanns sem veldur tjóni og einnig slysatjón eiganda ökutækis ef hann slasast sem farþegi í eigin ökutæki.
Lögboðnar ökutækjatryggingar þarf að kaupa fyrir öll skráningarskyld vélknúin ökutæki.
Upptalningin er ekki tæmandi. Kynntu þér skilmála tryggingarinnar.
Við eigendaskipti ökutækja þarf að:
Láttu okkur vita þegar þú hefur lagt inn númer ökutækis eða afskráð það og þá er tryggingin felld niður. Það nægir að hringja eða senda okkur póst á sjova@sjova.is*.
Ef númerin eru lögð inn hjá skoðunaraðilum þá getur tekið 1-2 daga áður en skráningin tekur gildi hjá Samgöngustofu. Um leið og skráningin tekur gildi getum við fellt niður trygginguna.
* Athugið að sérreglur geta átt við um ákveðin ökutæki.
Skráningarskyld ökutæki eru:
Þegar farið er með ökutæki erlendis þarf að huga að tryggingum. Lögboðnu ökutækjatryggingarnar gilda á Íslandi og í öðrum aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins (EES) auk Sviss. Hægt er að kaupa viðauka, svokallað Grænt kort, þannig að lögboðnar tryggingar gildi í nokkrum öðrum löndum en á Evrópska efnahagssvæðinu og Sviss. Þó er ekki hægt að kaupa viðauka fyrir öll lönd s.s. Bandaríkin og Kanada.
Græna kortið er staðfesting á því að ábyrgðartrygging sé í gildi í heimalandi ökutækisins. Eingöngu þarf að greiða fyrir kortið ef farið er út fyrir Evrópska efnahagssvæðið og Sviss. Viðaukann er einungis hægt að kaupa vegna landa sem eru aðilar að samstarfinu um Grænu kortin. Kortið er gefið út í útibúum okkar.
Nánari upplýsingar um Græna kortið.
Ef ökumaður hefur ekki öðlast ökuréttindi eða er undir áhrifum áfengis eða lyfja þegar hann lendir í tjóni, telst hann hafa valdið því af ásetningi eða stórfelldu gáleysi eins og það er kallað í lögum um vátryggingar.
Undir þessum kringumstæðum greiðir Sjóvá bætur úr lögboðinni ábyrgðartryggingu. Við getum þó endurkrafið ökumanninn um þær bætur sem greiddar eru úr tryggingunni vegna tjónsins. Málinu er þá vísað til endurkröfunefndar sem starfar á vegum viðskiptaráðuneytisins.
Ef um kaskótjón er að ræða getur bótaskylda fallið niður og þar með ber ökumaður sjálfur ábyrgð á tjóninu.