

Eldvarnir í fyrirtækjum skipta gríðarlega miklu máli og er það alfarið á ábyrgð forráðamanna fyrirtækja að sinna þeim. Góðar brunavarnir skapa betra vinnuumhverfi og betri rekstrarskilyrði.
Samkvæmt reglugerð um eldvarnir og eldvarnareftirlit sem tók gildi 2017 þurfa fyrirtæki að sjá um það sem kallað er eigið eldvarnareftirlit. Þetta þýðir meðal annars að fyrirtæki þurfa að útnefna sérstakan eldvarnarfulltrúa sem sinnir reglubundnu eftirliti með eldvörnum fyrirtækisins.
Þannig er gerð meiri krafa á atvinnurekendur en áður um að tryggja sem best öryggi á vinnustaðnum og ganga úr skugga um að eldvarnir séu alltaf í lagi. Með þessum hætti eykst vitund um öryggismál innan fyrirtækisins sem getur skipt sköpum ef eldur kemur upp.
Það fer eftir eftir eðli fyrirtækja hvað felst í eigin eldvarnaeftirliti. Í fyrirtækjum þar sem eldhætta er mikil þarf að sinna því daglega en í öðrum getur verið nóg að sinna því vikulega eða mánaðarlega. Þetta þarf ekki að vera mikil fyrirhöfn en mikilvægt að aðlaga eftirlitið að hverjum vinnustað fyrir sig. Eldvarnafulltrúinn fer yfir hvernig eldvörnum á vinnustaðnum er háttað, kannar hvort eitthvað megi bæta og tryggir að eldvarnir séu alltaf í lagi.
Hægt er að notast við staðlaða gátlista sem má nálgast á heimasíðu Eldvarnarbandalagsins.
Virkt eldvarnaeftirlit dregur úr eldhættu og stuðlar að auknu öryggi starfsfólks, viðskiptavina og reksturs. Þannig er tryggt að réttur viðbúnaður og viðbrögð séu fyrir hendi til að draga úr líkum á því að eldur kvikni, en ef eldur kemur upp valdi hann sem minnstu tjóni á fólki, byggingum og starfsemi.
Með því að fyrirtækin sinni þessu eftirliti sjálf verður starfsfólk almennt meðvitaðra um sitt eigið starfsumhverfi og hvað betur megi fara í þessum efnum
Fyrsta skrefið er að tilnefna eldvarnarfulltrúa og kynna sér þær reglugerðir Húsnæðis- og mannvirkjastofnunnar sem eiga við starfsemi fyrirtækisins. Á heimasíðu Eldvarnabandalagsins er að finna mikið af upplýsingum og ráðgjöf. Einnig er hægt að kaupa utanaðkomandi þjónustu sem sinnir eldvarnareftirliti.
Fyrirtækið Tandur, framleiðandi og söluaðili á hreinlætisvörum, er leiðandi á sínu sviði í forvörnum og öryggi. Þau sögðu okkur frá því hvernig þau haga sínum öryggismálum.
"Samkvæmt lögum þá ber atvinnurekandi ábyrgð á að koma á vinnuverndarstarfi sem tekur til fyrirtækisins í heild og allra vinnuaðstæðna sem geta haft áhrif á öryggi og heilsu starfsmanna. Að vinnustaðurinn sé þannig að þar sé gætt fyllsta öryggis og góðs aðbúnaðar. Aukin vitund um öryggismál er allra hagur, hefur jákvæð áhrif á öryggi og heilsu starfsmanna, traust viðskiptavina, orðspor og ímynd fyrirtækisins."
"Í lok hvers vinnudags þarf síðasti starfsmaður sem yfirgefur húsnæðið að yfirfara ákveðinn minnislista og kvitta fyrir inni í WorkPlace kerfinu okkar. Með þessu fyrirkomulagi næst sýnilegt aðhald allra starfsmanna og stjórnenda. Þar er m.a. farið yfir eftirfarandi atriði:"
"Aukið öryggi fyrir starfsfólk. Tryggja að réttur viðbúnaður og viðbrögð séu til staðar til að hindra að eldur kvikni. En ef það gerist að hann valdi sem minnstu tjóni á fólki, byggingum og starfsemi."
"Þetta er að hluta til komið frá okkur en einnig höfum við sótt okkur upplýsingar frá utanaðkomandi sérfræðingum m.a. okkar rafvirkjameistara, fulltrúum frá Slökkviliði og Vinnueftirliti."
"Starfsfólk er almennt meðvitaðra um sitt eigið starfsumhverfi og hvar betur má gera. Það er áríðandi að virkja sem flesta starfsmenn í þessari vinnu."
"Öryggisvörður og öryggistrúnaðarmaður sinna ákveðnu eftirliti reglulega og skrá niður hjá sér athugasemdir ef einhverjir eru og gera tillögu að úrbótum. Vinnan í kringum þetta er óveruleg en ávinningur mikill.
Einnig erum við í samstarfi við Securitas með eldvarnir. Þeir koma árlega og taka út brunakerfi, slökkvitæki o.fl. og gera úrbætur ef þurfa þykir."
"Heiðarlega þá höfum við ekki tekið saman kostnað við þetta eftirlit og sjáum enga ástæðu til þess þar sem að við teljum þetta eftirlit eitt af grunnstoðum rekstrarins."
"Alls ekki, þetta er bara hluti af því starfi sem öryggisfulltrúar okkar sinna."
"Öryggistrúnaðarmaður og öryggisvörður eru þeir aðilar sem sinna eldvarnareftirliti ásamt öðru vinnuverndarstarfi innan fyrirtækisins. Öryggistrúnaðarmaður er aðili sem er kosinn af samstarfsmönnum og öryggisvörður tilnefndur af atvinnurekanda."