Það skiptir máli að vera með tryggingavernd sem endurspeglar þinn rekstur. Sérfræðingar okkar búa yfir mikilli þekkingu og reynslu af samstarfi með fyrirtækjum í alls konar rekstri. Við yfirförum verndina reglulega svo hún taki alltaf mið af þörfum fyrirtækisins hverju sinni.
Þjónusta - Fyrirtækjaþjónusta okkar er mönnuð reynslumiklum sérfræðingum sem vita að rétt tryggingavernd getur skipt sköpum í rekstri fyrirtækja. Þeir leggja metnað í persónulega ráðgjöf og þjónustu. Í samvinnu við stjórnendur fyrirtækja er farið yfir tryggingaverndina reglulega til að tryggja að hagsmunum fyrirtækja sé sem best borgið. Hægt er að sníða lausnirnar okkar að fyrirtækjum óháð stærð og atvinnugrein, hvort sem um er að ræða sjálfstætt starfandi einyrkja, millistór fyrirtæki eða stórar fyrirtækjasamsteypur.
Árleg yfirferð tryggingaverndar - Starfsemi fyrirtækja er í stöðugri þróun, þess vegna þarf reglulega að endurskoða tryggingarverndina. Breytingar á starfsmannahaldi, umsvifum eða húsnæði kalla á breyttar tryggingar. Það sama á við ef fyrirtækið haslar sér völl á nýju sviði eða fjárfestir í nýjum tækjabúnaði. Við aðstoðum fyrirtæki við að endurmeta þörfina miðað við aðstæður hverju sinni.
*Tvisvar á 12 mánaða tímabili – eingöngu vegaaðstoð við fólksbíla
Það fylgir því mikil ábyrgð að hafa starfsfólk í vinnu og því mikilvægt að tryggja öryggi þeirra, það vitum við og leggjum okkur fram við að aðstoða við forvarnir. Reynslan sýnir að með markvissri forvarnavinnu er hægt að fækka og koma í veg fyrir tjón og slys sem hafa áhrif á afkomu og skaða ímynd, svo ekki sé minnst á afleiðingar tjóna og slysa fyrir starfsmenn.