Bætur á viðgerðartíma
Sem viðskiptavinur í Stofni býðst þér greiðsla vegna afnotamissis, 4.500 kr. á dag á meðan á viðgerðartíma stendur, að hámarki 31.500 kr.
Ef þú vilt ekki þiggja þessa greiðslu stendur til boða að fá bílaleigubíl á meðan gert er við bílinn þinn. Þá hefur þú samband við okkur eða bílaleiguna um leið og bótaskylda liggur fyrir. Við sendum þá beiðni fyrir þig til bílaleigunnar. Eingöngu er hægt að fá bílaleigubíl á Íslandi.
- Þú greiðir fyrir bifreið í flokki A
- Kynntu þér einnig skilmála viðkomandi bílaleigu varðandi eigin áhættu leigutaka og þann hámarksakstur sem er innifalinn í daggjaldinu
- Athugið að samkvæmt lögum þarf sá sem ætlar að leigja sér bílaleigubíl að vera orðinn tvítugur
- Við látum þig vita hvort þú átt rétt á bílaleigubíl
Á ég rétt á bílaleigubíl ef ég lendi í árekstri?
Réttur þinn á bílaleigubíl fer eftir
- Hvort þú varst í rétti
- Hvort þú ert með kaskótryggingu
- Hvort þú ert í Stofni
Þú getur séð á Mínum síðum hvers konar tryggingu þú ert með og hvort þú ert í Stofni.
Ef þú ert í rétti
Þú getur annað hvort tekið bílaleigubíl eða fengið greidda dagpeninga vegna afnotamissis meðan gert er við bílinn þinn.
- Lengd leigutímans miðast við eðlilegan viðgerðartíma ökutækisins og þú getur ekið allt að 100 km á dag án aukagjalds.
- Við þurfum að gefa út beiðni til bílaleigunnar til að þú fáir afhentan bílaleigubíl. Athugið að samkvæmt lögum þarf sá sem ætlar að leigja sér bílaleigubíl að vera orðinn tvítugur.
Ef þú ert ekki í rétti en með Kaskótryggingu
Þegar um kaskótjón er að ræða hafa viðskiptavinir Sjóvá eftirfarandi rétt:
- Ef þú ert með kaskótryggingu og ert í Stofni áttu rétt á að fá bílaleigubíl til afnota í allt að 7 daga eða greiðslu vegna afnotamissis, með sömu skilyrðum og hér að ofan.
Tafir á viðgerð
Ekki er greiddur afnotamissir fyrir þann tíma sem viðgerð tefst til dæmis vegna óvenjulega langs afhendingartíma varahluta vegna viðgerðar.
Bílaleigur í samstarfi við Sjóvá
Sjóvá á í samstarfi við fjölda bílaleiga. Smelltu hér til að sjá lista yfir útibú þeirra.