Tilkynna tjón
Það er mikilvægt að tilkynna tjón sem fyrst, sama hvers eðlis það er.
Því fyrr sem þú tilkynnir tjónið því betri upplýsingar getur þú veitt um það sem gerðist og afgreiðsla málsins fer fyrr af stað. Á vefnum okkar getur þú tilkynnt öll algengustu tjón sem verða, allt frá skemmdum á farangri í flugi til tjóna á fasteign og innbúi vegna vatnsskaða.
Ef þú lendir í tjóni er mikilvægt að bregðast rétt við til að lágmarka skaðann, án þess að leggja þig eða aðra í hættu.
Við erum alltaf á vaktinni, hvenær sem er sólarhringsins. Ef mikið liggur við utan afgreiðslutíma getur þú hringt í okkur í síma 800 7112 og við hjálpum þér að leysa málin.
Ef um er að ræða slys á fólki, innbrot, þjófnað eða skemmdarverk hafið þegar samband við 112.
Ef um alvarlegt slys eða bráð veikindi á ferðalagi erlendis er að ræða, getur þú hringt í SOS neyðarþjónustu í síma 0045 70 10 50 50.