Ef þú færð stein í rúðuna og hún skemmist, aukast líkurnar á hægt sé að gera við rúðuna þér að kostnaðarlausu ef þú setur framrúðuplásturinn strax á skemmdina.
Plásturinn kemur í veg fyrir að skemmd breiði úr sér þar til þú kemst með bílinn á verkstæði.
Ef þú lætur skipta um rúðuna greiðir þú 15% af eigin áhættu af heildarkostnaði.
Þrír kostir við framrúðuviðgerðir:
- Plásturinn er ókeypis fyrir viðskiptavini Sjóvá sem geta nálgast hann í útibúum okkar um land allt.
- Enginn viðgerðarkostnaður fyrir þig. Ef skipta þarf um framrúðu þá borgar þú eigin áhættu en með því að láta einfaldlega gera við rúðuna þá borgar Sjóvá viðgerðina að fullu og þú sleppur við að greiða eigin áhættuna.
- Styttri viðgerðartími og minna umstang. Það er mun fljótlegra að gera við rúðuna heldur en að setja nýja í bílinn sem þýðir styttri bið fyrir þig.
Viðgerðin er varanleg. Viðskiptavinir í Stofni teljast áfram tjónlaustir þó þeir láti gera við framrúðu.
Auk þess er þetta jákvætt fyrir umhverfið því senda þarf færri rúður í endurvinnslu.