Farsælt samstarf
Allt frá stofnun Slysavarnafélagsins Landsbjargar árið 1999 hefur Sjóvá átt farsælt samstarf við samtökin um vátryggingar, forvarnir og öryggismál. Sjóvá tryggir eignir og búnað björgunarsveita um allt land og sér til þess að björgunarfólk samtakanna, sem oft starfar við mjög erfiðar aðstæður, sé eins vel tryggt og kostur er.
Félögin vinna náið saman að ýmsum öryggismálum og forvarnaverkefnum. Í kringum flugeldasölu um áramót er lögð áhersla á notkun öryggisgleraugna og í desember hófu félögin samstarf um Öryggisakademíuna sem er nýtt verkefni á sviði forvarna. Sjóvá hefur einnig verið bakhjarl samtakanna vegna endurhönnunar og sölu björgunarsveita um allt land á Björgvinsbeltinu.
Önnur samstarfsverkefni eru vefurinn SafeTravel.is og Hálendisvaktin þar sem hugað er að öryggi innlendra og erlendra ferðamanna. Við erum stolt af því að vera bakhjarl Slysavarnafélagsins Landsbjargar og hlökkum til spennandi verkefna með þeim á komandi árum.